Back to search

Fighting early dropout in VA II

2019-1-IS01-KA101-0510512019School education staff mobilityfinalized
Countries: IS · Grant: €16,740
Open and distance learningEarly School Leaving / combating failure in educationICT - new technologies - digital competences

Objectives

Markmið verkefnisins voru annars vegar að efla alþjóðavídd skólans með því að veita kennurum tækifæri á fjölbreyttri endurmenntun og hins vegar að efla þá í notkun á kennsluaðferðum í anda 21. aldarinnar með sérstakri áherslu á notkun tækni með það fyrir augum að koma betur til móts við nemendur og þannig draga úr líkum á brottfalli.

Background

Verkefnið ber heitið "Barist gegn brottfalli í VA II" og sótt var um það til þess að efla nám og kennslu í skólanum og minnka brottfall. Til þess að ná því markmiði var hugsunin að efla kennara, fjölga verkfærum í kistu þeirra til þess að þeir gætu beitt kennsluaðferðum í anda 21. aldarinnar með sérstaka áherslu á notkun tækni. Markmiðið var einnig að geta veitt kennurum tækifæri á fjölbreyttri endurmenntun með það fyrir augum að auka alþjóðavídd skólans.

Project partners (1)