Til að styrkja stöðu stjórnenda og fá hugmyndir um hvernig best væri að vinna með starfsmannahópnum þannig að allir fái að njóta sín.
Að virkja starfsmannahópinn betur, þannig að starfsmenn geti sem best nýtt styrkleika sína í starfi. Vættaskóli var í tveimur aðskildum byggingum og stjórnendum þótti nauðsynlegt að fá aðstoð við að þétta hópinn. Sumarið 2019 fóru þrír stjórnendur af fimm á námskeið á vegum Merganser til Bath. Skólaárið 2019-2020 var síðasta starfsár Vættaskóla og styrkurinn fluttist yfir til Víkurskóla sem er unglingaskóli í norðanverðum Grafarvogi. Fyrstu tvö skólaárin voru í Covidástandi og voru stjórnendur mjög þakklátir að fá frestun á nýtingu á styrknum fram í júní 2022 þá fóru fjórir stjórnendur skólans á mjög gagnlegt námskeið í Dublin á vegum Europass Teacher Academy með kennaranum Natalie Croome
Til að styrkja stöðu stjórnenda og fá hugmyndir um hvernig best væri að vinna með starfsmannahópnum þannig að allir fái að njóta sín.