Back to search

Professional development of teachers - Refugees and immigrants - reception and teaching

2019-1-IS01-KA101-0510792019School education staff mobilityfinalized
Countries: IS · Grant: €24,030.02
Early School Leaving / combating failure in educationIntercultural/intergenerational education and (lifelong)learningIntegration of refugees

Objectives

Farið var af stað með að sækja um þetta námskeið til þess að skólinn verði enn betur faglega undirbúinn til þess að taka á móti flóttabörnum og hælisleitendum. Það er nauðsynlegt að sá hópur starfsmanna skólans sem kemur að móttöku þessa hóps sæki sér aukna þekkingu á málaflokknum og öðlist með því fleiri verkfæri til að takast á við þær áskoranir sem kunna að koma upp, sem og hugsanlegar breytingar á stefnumótun skólans er snúa að þessum málaflokki. Færni starfsmanna er sá þáttur sem á að efla með þessum styrk. Sækja þarf þekkingu til þeirra innan Evrópu sem búa yfir umtalsvert meiri reynslu af móttöku flóttamanna og hælisleitenda en við búum yfir á Íslandi.

Background

Flensborgarskólinn í Hafnarfirði er staðsettur í bæjarfélagi sem gert hefur samning undanfarin ár við Velferðarráðuneytið og Útlendingastofnun vegna móttöku flóttamanna og hælisleitenda. Einkunnarorð Flensborgarskólans eru Þekking, þjálfun, þroski og mikilvægt er að starfsmenn stofnunarinnar hafi þekkingu og öðlist þjálfun í að taka á móti nemendum sem koma hingað sem flóttamenn eða hælisleitendur. Nú veturinn 2022/2023 gerði Hafnarfjarðarbær samkomulag um að taka á móti 450 einstaklingum sem eru á flótta vegna stríðsástandsins í Úkraínu og mun því sá hópur nemenda sem að flokkast undir flóttamenn eða hælisleitendur sem sækja nám í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði að grunnskólagöngu lokinni stækka ört. Það er afar mikilvægt að starfsfólk skólans sé vel í stakk búið til að taka á móti þessum hópi nemenda, hópi nemenda sem auðga margbreytileika skólans.

Project partners (1)