Back to search

Vocational Training Abroad for Students of Tourism, Service and Culinary Subjects

2019-1-IS01-KA116-0510912019VET learner and staff mobility with VET mobility charterfinalized
Countries: IS · Grant: €36,584

Objectives

Okkur langaði að bjóða nemendum, úr matvælagreinum og ferðamálafræði upp á tækifæri til að öðlast nýja og framandi sýn í starfsnámi á framsæknum stöðum. Nemar í ferðamálafræði fá tækifæri að prófa og sjá ferðir og fyrirtæki sem bjóða upp á öðruvísi kosti en við gerum hér á Íslandi. Nemar í matvælagreinum fá að vinna á stöðum sem hafa Michelin stjörnur, standa framarlega í sjálfbærni og öðruvísi nálgun á mat.

Background

Í Menntaskólanum í Kópavogi er orðin hefð fyrir því að nemendur og starfsmenn á fagsviðum skólans, þá sérstaklega hótel- og matvælasvið og ferðamálasvið, leiti sér og tileinki reynslu á erlendri grundu. Það er mikilvægur liður í að ná okkur í reynslu og halda áfram að læra með opnum hug. Við sóttum um þennan styrk til að senda einungis nemendur í þetta sinn.

Project partners (1)