Starfsfólk í Fjölbrautaskólanum við Ármúla tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi til að m.a. vera upplýst um nýja strauma og stefnur í kennsluháttum en líka til að koma í veg fyrir að við hérna á hjara veraldar verðum einangruð og til að stækka tengslanetið. Við viljum geta gefa nemendum okkar tækifæri á að fara í starfsnám erlendis og einnig að starfsmenn fái tækifæri til endurmenntunar. Í þessu verkefnið var það bókasafnsfræðingur okkar sem fór á ráðstefnu ásamt bókasafnsfræðingur úr öðrum skólum. Hlutverk bókasafna hafa breyst mikið á undanförnum árum og því er mikilvægt að fylgjast með þeirri þróun.Til þess að geta gefið fleiri nemendum tækifæri á starsfnámi erlendið þá þarf að stækka tengslanetið og þess vegna fór deildarstjóri listgreina til Danmerkur að heimsækja fyrirtæki sem gæti í framtíðinni tekið á móti nemum á listasviði í starfsnám.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla sótti um þetta verkefni annars vegar til að geta sent nema í starfsnám erlendis og hins vegar til að starfsmenn geti kynnt sér aðrar sambærilegar stofnanir og stækkað tengslanetið.