Markmið verkefnisins þegar styrkurinn var sóttur 2019 voru eftirfarandi: • Styrkja menntun þeirra sem þegar eru í fjallamennskunámi við FAS eða hafa nýlega lokið því • Vinna að því að móta heildstætt nám í fjallamennsku og ævintýraferðaþjónustu • Vinna að því að nám í FAS fái opinbera formlega vottun sem starfsgreinin viðurkennir og nýtir sér • Bæta kennslufræðimenntun kennara í fjallamennsku við FAS • Stuðla að starfsþróun kennara í fjallamennsku við FAS Markmið nemendaheimsóknar voru einkum að auka möguleika nemenda að byggja ofan á og víkka það nám sem þeir höfðu þegar fengið í FAS auk þess að fá tækifæri til að kynnast erlendum nemendum í sambærilegu námi. Einnig að nemendur fengju tækifæri til að kynnast starfsemi ævintýraferðaþjónustufyrirtækja utan Íslands. Markmið starfsmannaheimsóknar var að styrkja starfsþróun kennara í FAS og fagmennsku í kennslu og þar með auka áhuga þeirra á að gera kennslu í fjallamennsku að sínu aðalstarfi. Það myndi styrkja nám við skólann verulega. Mikil starfsmannavelta hefur verið í kennarahópi fjallamennskunámsins í FAS, en þeir kennarar sem koma að kennslunni hafa haft meiri reynslu af fjallamennsku en eiginlegri kennslu innan menntastofnunar.
Á Íslandi er ekki er krafist formlegrar menntunar eða hæfni til að starfa við fjallaleiðsöng eða ævintýraferðaþjónustu. Slíkt væri æskilegt af öryggisástæðum. Í umræðunni er að setja slík skilyrði svo sem gagnvart þeim sem fá stafsleyfi til ferðaþjónustu innan þjóðgarða og hefur það nú að einhverju leyti verið gert. FAS hefur unnið að þróun starfsnáms fyrir starfendur í ævintýraferðaþjónustu í gegnum Erasmus+ verkefnið ADVENT og hefur efnt til samtals milli þeirra sem koma að menntun í ævintýraferðaþjónustu á Íslandi með það að markmiði að móta heildstætt nám í ævintýraferðþjónustu. Afrakstur þeirrar vinnu er ný námskrá í ferðaþjónustu sem bíður samþykktar menntamálastofnunar. Námið inniheldur kjarna og mismunandi sérhæfingu, m.a. fjallamennsku, og getur lokið með stúdentsprófi. Með verkefninu bregst FAS við þeirri stöðu sem er á Íslandi í fjallamennsku og ævintýraferðaþjónustu þar sem margir starfa með litla formlega menntun og þar sem formlega heildstæð opinber íslensk vottun á hæfni í fjallamennsku og ævintýraferðaþjónustu er ekki til. Ástæða verkefnisins er einnig sú að lítið er um samhliða hæfni í fjallamennsku og kennslufræði. FAS þarf að styrkja kennara skólans í kennslufræði og leita þekkingar þar sem hana er að finna.