Back to search

Samfés study visit

2019-3-IS01-KA105-0656922019Youth mobilityfinalized
Countries: IS|SI|IE · Grant: €17,762
Recognition (non-formal and informal learning/credits)Youth (Participation, Youth Work, Youth Policy)International cooperation, international relations, development cooperation

Objectives

Eitt af markmiðum Samfés var að efna til og taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á innlendum og erlendum vettvangi sem tengjast málefnum ungs fólks ásamt því að efla okkar fjölþjóðlega samstarfsnet, þróa starfið, læra eitthvað nýtt og hafa áhrif á umræðu, hugmyndir um málefni sem snerta starfið með ungu fólki. Það er þess vegna sem við sóttum um þennan mikilvæga styrk. Það er stór hluti af starfi Samfés að horfa fram á veginn, vera með fingur á púlsinum hvað varðar æskulýðsstarfið og mikilvægt að stjórnin sé ávallt virk í stefnumótun samtakanna og aðilarfélaga. Ólíkur bakgrunnur stjórnarmanna og fulltrúa Samfés sem og tiltölulega ör stjórnarskipti eru mikilvægir þættir í því að við verðum reglulega að efna til og taka þátt í verkefnum sem þessu. Upprunalega var ætlunin að heimsækja samtökin Mladinski center Zagorje ob Savi en vegna heimsfaraldurs seinkaði brottför sem hafði þær afleiðingar að upphaflegir tengiliðir á báðum félögum voru ekki til staðar lengur. Fyrir vikið, komum við á tengingu við Paul Gralton, varaformann Youth Work Ireland. Markmið heimsóknarinnar var meðal annars til þess að stjórn Samfés gæti ákveðið þá stefnu og þau skref sem mikilvæg eru að taka fyrir samtökin og æskulýðsvettvanginn á Íslandi. Markmiðið var að kynnast starfsemi og verkefnum samtakanna, skoða ólíkar félagsmiðstöðvar í þéttbýli, í dreifbýli, ræða áframhaldandi samstarf með ungmennaskipti og skipti á sjálfboðaliðum í huga. Við vildum með þessu verkefni styrkja hópinn sem og að flytja heim og miðla þekkingu og reynslu til aðildarfélaga samfés á landsvísu. Það var einnig okkar ósk að stofna til ungmennaskipta þannig að ungmennaráðið Samfés njóti góðs af þessu samstarfi þar sem þetta ýtir undir samstarfsgrundvöll milli ungmennaráða þessara landa og þar af leiðandi unglingarnir í félagsmiðstöðvum á Íslandi Aðalmarkmið með verkefninu var að kynnast starfsemi samtakanna, félagsmiðstöðvanna, ungmennahúsa, sjá hvernig þau vinna með unga fólkinu, efla þekkingu þátttakenda og mynda samstarfsgrundvöll til framtíðar. Í því samhengi var kynning á þeirra helstu verkefnum, stefnumótun í æskulýðsmálum mikilvæg, heimsóknir í félagsmiðstöðvar og ungmennahús. Við vildum einnig kynnast þjálfun starfsfólks og skiptast á góðum starfsháttum þar sem Samfés hefur gríðarlega reynslu af skipulagningu og framkvæmd m.a. starfsdaga fyrir starfsfólk í félagsmiðstöðum og ungmennahúsum. Markmiðið var að kynnast starfsháttum í samtökunum sem og í fjölbreyttum félagsmiðstöðvum, starfsstöðvum og ungmennahúsum og auka þar með þekkingu og færni stjórnarmanna og annarra fulltrúa Samfés. Einnig að kynnast þeirra nálgun á opnu æskulýðsstarfi, starf ungmennaráðs og mynda samstarfsgrundvöll fyrir sameiginleg verkefni á milli samtakanna.

Project partners (3)