Back to search

Changing times

2020-1-IS01-KA101-0657202020School education staff mobilityfinalized
Countries: IS · Grant: €6,175
ICT - new technologies - digital competencesCreativity and culture

Objectives

Markmiðið var að þátttakendur kynntust helstu nýjungum á sínu fagsviði, sérstaklega í upplýsingatækni til að mæta þörfum nýrra kynslóðar nemenda og skólasamfélagsins. Upplýsingafræðingarnir fóru til Finnlands, sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í menntun á síðustu árum og einnig eru almenningsbókasöfn þar fremst í flokki, bæði hvað varða nýjungar í þjónustu, tækni og hönnun húsnæðis. Skoðaðar voru ýmsar nýjungar í tækniþróun (Makerspace), hönnun bókasafna og nýtingu rýmis. Kennarinn fór á námskeið Coping with Web 2.0 technology, sem mun gagnast honum starfi við að mæta þörfum snjallsíma og netkynslóðarinnar.

Background

Örar breytingar í kennsluháttum og upplýsingatækni gera kröfur til þess að kennarar og stoðdeildir skólans s.s. bóka- og upplýsingamiðstöð fylgist með nýjungum og séu virkir þátttakendur á þessu sviði. Þörf er á aukinni færni og nýjum vinnubrögðum allra starfsmanna: kennara, stjórnenda og stoðdeilda til að uppfylla þarfir nýrrar kynslóðar nemenda og vera betur í stakk búin að takast á við fjórðu iðnbyltinguna.

Project partners (1)