Verkefnið „Innleiðing sjálfbærniþróunarmarkmiða og sjálfbærnifræðslu í Kópavogi“ miðar að því að stuðla að markvissri starfsþróun (þekkingaröflun og hæfniþjálfun) í sjálfbærnifræðslu fyrir ólíka hópa innan skólasamfélagsins í Kópavogi, þar með talið þjálfun í aðlögun kennslu og námsaðferðir og þróun námsgagna. Markmið verkefnisins var að mæta þessum þörfum með markvissum þjálfunarnámskeiðum, einu fyrir kennara í leikskólum, öðru fyrir kennara í grunnskólum og því þriðja fyrir stjórnendur í leik- og grunnskólum. Í gegnum verkefnið gafst kennurum og skólastjórnendum í leik- og grunnskóla í Kópavogi, og menntunarsérfræðingum á skólasviði, tækifæri til að sækja sérsniðnar 3ja daga vinnustofur hjá menntastofnuninni Djapo í Leuven, Belgíu. Þátttaka á námskeiðnunum gaf skólafólkinu sem tók þætt að öðlast innsýn í hugtakið sjálfbærni og kennslufræði menntunar til sjálfbærni, öðlast markvissa þjálfun í að innleiða aðferðafræði menntunar til sjálfbærni og verkfæri til að styðja við innleiðinguna. Góður skilningur á hugtakinu og færni til að innleiða markvisst aðferðafræði um menntun til sjálfbærni forsenda þess að kennarar, skólastjórnendur og stefnumótendur skóla geti skipulagt og innleitt sjálfbærnifræðslu í stofnun sinni eða skólasamfélagi, t.d. umbreytingu, kerfisbundin, vitræna og hugsunarhæfni/færni.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti árið 2018 að ný stefna bæjarfélagsins til ársins 2030 væri samsett af 36 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Kópavogur var þannig fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að innleiða heimsmarkmiðin á formlegan og yfirgripsmikinn hátt um allt samfélagið. Í september 2021 var síðan ný menntastefna Kópavogsbæjar samþykkt af bæjarstjórn. Í menntastefnu koma fram mjög skýrar áherslur um menntun til sjálfbærni. Menntasvið Kópavogs ber ábyrgð á að öllum börnum og ungmennum í Kópavogi sé gefinn kostur á fræðslu um sjálfbærni. Til þess þarf sveitarfélagið að efla vitund og markvisst efla þekkingu og hæfni þeirra sem vinna með börnum og ungmennum í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og hugmyndafræði menntunar til sjálfbærni (Education for Sustainable Development - ESD menntun) til að stuðla að sjálfbærri þróun og leiðum til að innleiða sjálfbærnifræðslu sem hluta af daglegri kennslu í skóla. Þessi nýja áhersla í menntun kallar ekki aðeins á aukna þekkingarsköpun og færniþróun heldur einnig viðhorfsbreytingar hjá þeim sem bera ábyrgð á menntun barna og ungmenna - jafnt kennara, skólastjórnenda, stjórnenda og stefnumótenda. Skortur er á aðgengi að góðu námsefni í þessu tilliti.