Meginmarkmið erlends samstarfs í Borgarholtsskóla eru að efla skólann sem lærdómssamfélag, skólabrag, samvinnu, kennslufræðilega þekkingu og hæfni, faglega þekkingu, hæfni á sviði frumkvöðlamenntunar og sköpunar og hæfni í alþjóðlegum samskiptum og tungumálum. Á þessum sviðum eru þarfir skólans helstar fyrir umbætur og tekur gæðastarf skólans mið af því. Verkefnin sem framkvæmd voru á árunum 2020-2023 tóku mið af ofantöldum markmiðum og voru verkefnin einnig metin útfrá þeim.
Skólinn telur erlent samstarf mikilvægan hluta af verk- og starfsnámi og var umsóknin hluti af þeirri áætlun og áherslu skólans. Markmið verkefnisins var að efla bæði starfsfólk og nemendur í gegnum starfsnám og starfsmenntun og efla samstarf við þá skóla sem við höfum verið að kynnast síðustu ár.