Back to search

Go abroad-find opportunities in Europe

2020-1-IS01-KA102-0657452020VET learner and staff mobilityfinalizedGood practice
Countries: IS · Grant: €17,276
Quality Improvement Institutions and/or methods (incl. school development)International cooperation, international relations, development cooperation

Objectives

Markmið verkefnisins var tvíþætt. Hið fyrra að hvetja til aukinnar þátttöku starfs- og verknámskennara í erlendu samstarfi og efla með því kennslu í þessum greinum og opna dyrnar að frekara samstarfi við skóla og fyrirtæki í Evrópu. Hitt markmiðið var stíga fyrstu skrefin í því að senda nemendur í verknám erlendis, öðlast reynslu í því að skipuleggja slíkar ferðir og fjölga þar með tækifærum nemenda okkar í starfsþjálfun. Með verkefninu var vonast til að efla mætti áhuga starfs-og verknámskennara á erlendu samstarfi og að það myndi skila sér inn í lærdómssamfélagið innan skólans með aukinni þekkingu og færni. Einnig vildum við öðlast reynslu í því að senda nemendur erlendis í starfsþjálfun og að nýta mætti þá reynslu til að byggja á til framtíðar. Möguleiki á að komast í starfsþjálfun erlendis getur einnig virkað sem hvati fyrir nemendur að skrá sig í verk- eða iðnnám, verið hvetjandi í náminu sjálfu og gefið því aukna dýpt. Nemendur og kennarar sem fara í starfsþjálfun erlendis fá ekki bara þjálfun og lærdóm í sínu fagi heldur kynnast líka menningu annarra þjóða, fá þjálfun í að tjá sig á og skilja erlend tungumál og mynda vonandi vinatengsl sem þau taka með sér inn í framtíðina. Samvinna sem þessi gefur þannig af sér á margan hátt og er þar af leiðandi dýrmæt

Background

Síðustu ár hefur orðið mikill vöxtur í erlendu samstarfi innan Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hugmyndin að verkefninu kviknaði vegna þess að þátttaka kennara í starfs-og verknámi var mun minni en annarra kennara. Annað ýtti undir að sækja um verkefni var að nemendur í sjúkraliðanámi höfðu komið að máli við alþjóðafulltrúa og spurt um hvort boðið væri upp á að taka hluta af verknámi erlendis. Engin reynsla af því var fyrir hendi í skólanum og því var ákveðið að sækja um verkefni með það markmið að hvetja verknámskennara til að taka þátt í ferðum sem þessum og að stíga fyrstu skrefin í að skipuleggja ferðir nemenda í starfs-og verknámi. Við töldum kennara geta lært mikið af því að fara erlendis í skólaheimsóknir og að með þeim yrðu til tengsl sem gætu nýst nemendum okkar. Samskipti og samvinna eins og á sér stað í skólaheimsóknum kennara og í starfsþjálfun nemenda erlendis er líkleg til að stuðla að aukinni víðsýni og þroska og veitir tækifæri til að kynnast venjum, hugsunarhætti og starfsháttum í öðrum löndum Evrópu. Tækifæri sem þessi eru mikilvæg skóla sem vill vera í fremstu röð í starfs-og verknámi og gefur fjölbreyttari möguleika fyrir skólaþróun, endurmenntun og þjálfun bæði kennara og nemenda.

Project partners (1)