Ætlunin var að senda fjóra sjúkraliðanema í starfsþjálfun gegnum SOPU í Kaupmannahöfn. Einnig var sótt um fyrir þrjá starfsmenn að fara í skipulagðar heimsóknir til stofnana og skóla. Þar af ætluðu tveir kennarar Heilbrigðisskólans til Kaupmannahafnar að heimsækja SOPU. SOPU hefur tekið á móti sjúkraliðanemum frá FÁ undanfarin ár og var ætlunin að styrkja tengslin þar frekar. Einnig var stefnt á að heimsækja fleiri stofnanir sem gætu hugsanlega orðið móttökuaðilar fyrir lyfja- og tanntækninema í framtíðinni í leiðinni. Starfsmaður bókasafnsins átti að fara til Helsinki að kynna sér nýjungar á bókasöfnum, þar sem söfnin eru ekki lengur bara bókasöfn heldur frekar upplýsingamiðstöðvar eða þekkingarsetur. Með þessu verkefni hefur skólinn tök á að styðja við nemendur í sjúkraliðanámi og auka við þá valkosti sem þeim bjóðast. Starfsþjálfunarverkefni efla færni kennara sem taka þátt í þeim á mörgum sviðum og styrkja tengslin við þá skóla og þær stofnanir sem heimsóttar eru.
Sótt var um þetta verkefni annars vegar til að geta sent sjúkraliðanema í starfsnám og hins vegar kennara í starfsþjálfun. Undanfarin ár hefur Heilbrigðisskólinn sent nokkra sjúkraliðanema í starfsnám á vorönn. Hlé varð á því vegna Covid en vorið 2022 fóru sjúkraliðanemar út á ný á okkar vegum.