Við vildum efla starfsfólk okkar, koma á nýjum tengingum og skapa tækifæri fyrir nemendur að leggja stund á ákveðna hluti sinna iðngreina á erlendri grundu. Það náðist því miður ekki vegna heimsfaldurs Covid-19 og þau tengsl sem átti að mynda náði ekki að koma á.
Meginmarkmið skólans er að nesta nemendur okkar með hæfni sem dugar þeim til leiks og starfs á 21. öldinni. Ástæðan fyrir því að sótt var um verkefnið má segja að hafi hverfst um þetta markmið þar sem það sneri bæði að endurmenntun starfsfólks og því að skapa tækifæri á skiptinámi á erlendri grundu fyrir nemendur okkar. Skólinn okkar er nokkuð einangraður vegna staðsetningar sinnar, hann er eini iðn- og starfsnámsskólinn á stóru svæði á Íslandi, frá Selfossi í suðri til Akureyrar í norðri. Það að geta boðið nemendum og starfsfólki okkar upp á tækifæri eins og þessi er því algjört lykilatriði varðandi það að efla skólastarfið. Með því að sækja starfsspeglun eflist þessi fagþekking til muna og til verða sambönd við evrópska kollega sem skilar sér í sterkara starfsfólki og enn betra skólastarfi. Síðustu ár höfum við beint sjónum okkar að eflingu kennsluaðferða og þá sérstaklega styrkingu í iðn- og starfsnámi. Verkefnið var því lykill í því.