Markmið Ungmennaskiptin er tveggja vikna, óhefbundið nám þar sem reynir á samskiptahæfni þátttakenda þegar þau ferðast og vinna saman í hópi með fólki af ólíku þjóðerni, með mismunandi þarfir og frá ólíkum menningarheimum í gegnum samtöl og samvinnu út frá þema sem valið er hverju sinni. Vinnan fer fram í tvo daga og niðurstöðu og afrakstur þeirra svo sýndur almenningi á þriðja degi. Þar að auki öðlast þátttakendur frekari færni á sviði þeirrar listgreinar sem þeir velja að vinna að í fimm daga listasmiðju undir handleiðslu fagfólks úr mismunandi listgreinum á meðan á LungA hátíðinni stendur. Með ungmennaskiptunum fer fram mikil sjálfsskoðun og hver þátttakandi fær einstakt tækifæri til að líta inn á við og kynnast betur eigin styrkleikum og veikleikum og öðlast um leið hugrekki til að takast á við áskoranir sem felast m.a í mikilli nánd í ókunnugu umhverfi með ókunnugu fólki en þátttakendur og leiðbeinendur eyða nánast öllum stundum saman. Markmið ungmennaskiptanna og LungA er að skapa vettvang fyrir samtal um málefni sem skiptir máli og snertir okkur öll en yfirskrift ungmennaskiptanna í ár var ATFERLI - Hvers vegna gerum við það sem við gerum? - Orsök og afleiðing. Vinnan fer fram eins og áður sagði með tveggja daga smiðju og niðurstöðurnar sýndar á þriðja deginum. Mánudaginn 11. júlí hófst svo LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi í tuttugasta og fyrsta sinn, með 7 listasmiðjum undir stjórn þekktra íslenskra og danskra listamanna með áherslu á ólíkar listgreinar sem þátttakendur ungmennaskiptanna gátu valið úr en auk þeirra tók fjöldinn allur af ungu fólki, sem lagði leið sína til Seyðisfjarðar, þátt í LungA og listasmiðjunum. Á meðan á LungA stóð var boðið uppá ýmsar uppákomur, s.s. tónleika, gjörninga, leiksýningar, karókí, svo eitthvað sé nefnt, sem opið var almenningi og vel sótt af íbúum bæjarins og þátttakendum hátíðarinnar enda kærkomið að bjóða upp á viðburði án samkomutakmarkana. Vikan endaði svo á tveggja daga tónlistarveislu sem haldin var á Herðubreiðarplaninu og skólalóð Seyðisfjarðarskóla fyrri hluta kvölds en færðist svo inn í íþróttasal eftir miðnætti. Hér fyrir neðan er yfirskrift ungmennaskiptanna á ensku sem send var til þátttakenda fyrir ferðina. Dagskrá ungmennaskiptanna má finna í fylgiskjölum. Einnig má finna dagskrána á www.lunga.is Translation in English The aim of LungA youth exchanges is to empower individuals of different cultural backgrounds and ethnicity to work together for 15 days on a universal theme in the remote Eastern part of Iceland, Seyðisfjörður. This year's theme was BEHAVIOR, Why we do what we do - Cause and Effect (please see the hand out given to the participants prior to their arrival to Seyðisfjörður in annexes and a description of the theme below). The participants of the workshop spend their time closely during these 15 days and through conversation, intimate working experience, creating artwork they form a unique bond with their partners as well as experience new medium, deepen their knowledge working in a group with people from different schools that have different perspectives. They also get a unique opportunity to reflect inward an learn more about them selfs and is that an important part of the exchanges. LungA art festival opened on Monday 11th of July with seven workshops taught by well known Icelandic and international artists. Our participants from the EUF exchange met other young Icelandic people and had the opportunity to deepen their knowledge in the medium they selected as well as interact with other people. The outcome was presented in an exhibition that took place in Seyðisfjörður on Friday the 15th of July. During the LungA art festival, the town of Seyðisfjörður is packed with cultural events such as concerts, exhibitions, performances, etc. All events were joyfully attended by locals and others after two years of restrictions due to pandemic. The festival closes with two days of a music festival. For further information visit www.lunga.is PROJECT DESCRIPTION VANTAR