Back to search

Food and culture

2020-1-IS01-KA105-0657942020Youth mobilityfinalizedGood practice
Countries: IS|LT · Grant: €30,384
Youth (Participation, Youth Work, Youth Policy)Recognition (non-formal and informal learning/credits)EU Citizenship, EU awareness and Democracy

Objectives

Félak, félagsmiðstöðvar á Akureyri, stofnuðu hóp eða klúbb haustið 2019 sem samanstóð af nemendum á unglingastigi úr öllum skólum bæjarins. Nemendurnir voru valdir í hópinn í samráði við námsráðgjafa skólanna en allir eiga þeir sameiginlegt að glíma við félagslega einangrun, standa aðeins út fyrir hóp sinn í sínu nærsamfélagi og/eða sýna aðra áhættuhegðun eða sýna áhættuhegðun óvenjulegan áhuga. Markmiðið með klúbbnum var að búa til hóp þar sem þessir einstaklingar fá tækifæri til þess að tilheyra hóp, upplifa jákvæða virkni, kynnast öðrum nemendum utan síns skóla og vinna sameiginlega að verkefninu Ungmennaskipti við annað land. Hópurinn hittist vikulega í hópefli, skemmtun, verkefnavinnu og sáu alfarið sjálf um umsóknina til Erasmus. Þegar heimsfaraldur skall á og dvaldi lengur en við hefðum vonað þá varð ljóst að hópurinn myndi ekki ná að klára verkefnið. Haustið 2022 var því farið af stað aftur, í samvinnu við námsráðgjafa skólanna og nýr sambærilegur hópur valinn til að klára verkefnið.

Project partners (2)