Okkar markmið var að viðhalda því góða starfi sem Ásdís var búin að ná með samstarfi við skóla erlendis. Við vildum sjá nemendur fá tækifæri til að upplifa starfsreynslu í öðrum löndum og bæta við sig ómetanlegri reynslu. Við vildum senda starfsfólk í námsferðir og bæta við sig þekkingu, hugmyndum og reynslu sem myndi nýtast í starfi hjá okkur og skila sér til nemenda.
Við sóttum um þennan styrk til að veita nemendum okkar í Hótel og Matvælaskólanum og Ferðamálaskólanum tækifæri til að fara í starfsnám erlendis. Einnig voru starfsmenn skólans sem að óskuðu eftir að fara í ferðir sem að nýtast í starfi. Alþjóðastefna Menntaskólans í Kópavogi leggur áherslu á að nemendur og starfsfólk gefist kostur á að tileinka sér þekkingu og starfshætti. Ásdís Vatnsdal alþjóðafulltrúi sækir um styrkinn og skrifar í umsókn að "festa hafi skapast hvað varðar námsferðir og er nú hægt að skipuleggja þær með góðum fyrirvara". Sem eftir á að hyggja átti eftir breytast ansi hratt því örfáum vikum seinna brýst út heimsfaraldur. Önnur stór breyting sem gerist í framhaldinu er að Ferðamálaskólinn er lagður niður og miklar mannabreytingar í stjórnendastöðum sem eiga sér stað hérna innanhús sem verða til þess að þessi festa raskast. Þarna er stór þáttur alþjóðasamstarfs að breytast og við tók bið, óvissa og uppbygging - sem við höfum verið að takast á við, skref fyrir skref. Við stefnum á að ná upp fyrri stöðugleika og festu og okkur finnst við vera að færast nær því markmiði með því að hafa komið á nýjum samstarfssamningum við skóla í Frakklandi og Danmörku.