Back to search

Make a good school better

2020-1-IS01-KA116-0657592020VET learner and staff mobility with VET mobility charterfinalizedGood practice
Countries: IS · Grant: €114,493

Objectives

Við viljum gefa fleiri nemendum og starfsfólki tækfæri á að kynnast Erasmus ferðum í tengslum við nám og þjálfun í list og verknámi. Við viljum einnig bæta okkur og gera betur eftir hverja ferð. Við ræðum við nemendur eftir að heim er komið og endurmetum stöðuna og förum yfir það sem tókst vel en einnig það sem betur hefði mátt fara. Við eru einnig á verði og fylgjumst með hvernig gestgjafar okkar standa sig og erum vakandi yfir nýjum tengiliðum og samstarfsfólki í þeim löndum sem við teljum okkur geta unnið vel með. Við sækjumst eftir því að löndin/skólarnir/stofnanirnar sem við vinnum með hafi gæðavottun og vinni með sömu hugmyndafræði og við í tengslum við sjálfbærni og heimsmarkmiðin Sameinuðu þjópðanna. FB er Unesco skóli og vinnur með heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna í daglegu skólastarfi og kennslu. Á þann hátt teljum við okkur ekki einungist bæta okkur sem einstaklinga og skóla heldur einnig leggja okkar að mörkunum til að gera heiminn betri og meðvitaðri um umhverfið og umhverfismál. Sem dæmi um græna stefnu skólans þá hefur skólinn plantað trjám fyrir hverja flugferð sem farin er á vegum skólans. Á síðasta ári var 400 trjám plantað í samræmi við flugferðir skólans. Það er Kolviður sem hefur plantað tjránum fyrir okkur.

Background

Marmikið okkar er að efla skólann. Ótrúlega mörg og spennandi verkefn sem hafa sprottið úr samvinnu okkar við Rannís og Erasmus. Þetta verkefni okkar heitir "Gerum góðan skóla betri" . Það er einmitt marmkið okkar og efla okkur öll og bæta fagkunnáttu okkar, efla tengsl við útlönd, þétta tengslanetið okkar og tengja starfsfólk við annað starfsfólk á sama eða svipuðu sviði í útlöndum. Fjölgun nemenda í verk- og listnám í FB hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár og eru rafvirkjabraut og húsasmiðabraut stærstu brautir skólans ásamt listabraut og eiga Erasmusverkefni okkar þátt í því. Mikilvægur hluti hjá okkur eru Erasmus náms- og þjálfunarferðir og við viljum vera öflug á þessu sviði. Við efum það ekki að Erasmus styrkir okkar í námi og þjálfun fyrir list-og verknám hafa haft sitt að segja í auknum vinsældum skólans. Á öllum skólakynningum okkar fyrir grunnskólanema kynnum við möguleika Erasmus mjög vel, sem og á stóru framhaldsskólakynningunum sem fram fara í Laugardalshöll. Þá höfum við verið dugleg að segja frá Erasmus ferðum okkar í dagblöðum, viðtölum við nemendur og starfsfólk. Þá höfum við alltaf sagt vel og ítarlega frá Erasmusferðum á samfélagsmiðlum sem og heimasíðu skólans og á fundum með kennurum og stjórnendum.

Project partners (1)