Markmið ungmennaskiptanna var að ýta undir jákvætt lærdómsumhverfi fyrir hópinn sem heild en einnig hvern og einn persónulega. Aðalmarkmiðið var að ýta undir þátttöku og virkni ungmenna, við nýttum hverja einustu smiðju og vinnustofur sem voru í verkefninu til að ýta undir þessa þætti. Við vissum að við værum fjölbreyttur hópur með mismunandi þarfir og að við gætum lært hvort af öðru. Með því að leggja áherslu á þátttöku í öllu sem við gerðum og að koma fram við alla af virðingu, var hægt að tryggja að markmiðunum yrði náð.