Markmið ferðarinnar var að fara saman í fræðsluferð til Eistlands til að fá þar fræðslu um hvernig unnið er með ungu fólki á faglegan hátt á dreifbýlli svæðum. Að auka bæði möguleikann á faglegu starfi innan sveitarfélagsins en ekki síður blása anda í brjóst starfsfólks sem hefur síðustu árin fengið lítinn eða engan faglegan stuðning frá sinni stjórnsýslu eða kjörnum fulltrúum. Slík ferð myndi einnig nýtast til að miðla eigin faglegu reynslu og vitneskju og ekki síst kjörin til að mynda tengsl á milli fagaðila í báðum löndum.