Með verkefninu Landsþingi Ungmennaráðs Samfés 2022 vildum við gefa ungu fólki tækifæri til að taka þátt, bera málefni sín á borð skv. hugmyndum um unglingalýðræði og koma rödd sinni framfæri. Á Landsþinginu fékk ungt fólk tækifæri til að tjá sig um hins ýmsu málefni þeim hugleikin. Í kjölfarið á landsþinginu tók ungmennaráð saman niðurstöður og sendir ályktanir á ráðuneyti, sveitarstjórnir og fjölmiðla eftir því hvort ástæða þykir. Tilgangur Landsþings ungs fólks er m.a. að gefa unglingum af öllu landinu tækifæri til að bera málefni sín á borð skv. hugmyndum um unglingalýðræði. Í ljósi þess að unglingar upplifa nú á tímum COVID-19 óvissu, kvíða, einangrun og takast á við nýjar áskorana hvað varðar starfið í félagsmiðstöðvum, skóla og sumarstörfum er mjög mikilvægt að veita enn fleiri unglingum tækifæri á því að taka þátt á Landsmóti Samfés sem fer fram 1.-3. október 2021. Því vildum við tryggja virka þátttöku ungs fólks af öllu landinu að koma og taka þátt á þessum frábæra viðburði þar sem að lýðræðisleg vinnubrögð eru alls ráðandi. Virk þátttaka, aðkoma og rödd unglinga á Landsmóti eru lykilatriði í viðspyrnu í æskulýðs- og forvarnarstarfi á landsvísu. Fulltrúar Ungmennaráðs Samfés koma að hugmyndavinnu, skipulagi og framkvæmd með því að velja málefni og viðfangsefni sem tekin voru fyrir á öllu Landsmótinu. Markmiðið var að geta niðurgreitt eða fellt niður öll gjöld á ungmenni sem taka þátt á Landsmóti og Landsþingi og þar með tryggt jöfn tækifæri til þátttöku. Heildar þáttökukostnaður var niðurgreiddur.