Markmið verkefnisins var að safna saman unglingum í Múlaþingi, nýsameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi, til að ræða hvað sameining fjögurra sveitarfélaga í eitt þýðir fyrir unglinga á svæðinu og hvernig þau geta haft áhrif á sitt nærsamfélag. Hvernig hægt er að nýta sameiningu til að bæta þjónustu við þennan hóp íbúa, gæði kennslu, fjölbreytni í tómstundum og íþróttum og fleira. Það sem við vildum fá út úr þinginu var að unglingarnir ræddu saman um það hvað þeim finnst mikilvægast og við vildum skila þeim áherslum skýrt til stofnana og kjörinna fulltrúa sveitarfélagsins.