Markmið okkar var að víkka sjóndeildarhring starfsfólks félagsmiðstöðva á Suðurnesjum og fá fleiri góðar og skemmtilegar hugmyndir um hvernig gott megi betur fara í okkar starfi. Hugmyndin er að allir starfsmenn taki eitthvað nýtt og helst eitthvað sem ekki hefur verið í okkar starfi með sér inn í sína félagsmiðstöð. Það er svo mikilvægt að nýta þennan vettvang og fara út fyrir sitt box og skoða hvað aðrir eru að gera á sama vettvangi.