Fyrsta markmiðið er að efla starfsmannahópinn okkar. Með því að kynna okkur gæða frístundastarf hjá leiðandi aðilum, í Evrópu sækjum við hugmyndir og verkfæri til að styrkja okkar starf heimavið sem og að þróa okkar starf lengra. Annað markmiðið er að efla ungmennaráð sveitarfélagsins. Ekki er búið að framkvæma ungmennaskipti með ungmennaráð en hins vegar eru starfsfólk sem vinnur með ungmennaráðinu búið að sækja sér þekkingu og tengsl í gegnum starfsmannaferðirnar. Að auki hafa meðlimir ungmennaráðs komið inn í önnur verkefni. Loks er þriðja markmiðið að efla ungt fólk í sveitarfélaginu. Sérstaklega ungt fólk með færri tækifæri. Öll ungmennaskiptin hafa þau markmið að leyfa ungu fólki með færri tækifæri að taka þátt í spennandi verkefnum. Mikið af verkefnunum notar hlutverkaspil sem verkfæri sem laðar að hópa ungs fólks með færri tækifæri. Í gegnum verkefnið og ungmennaskiptin er verið að virkja þátttöku ungs fólks og stækka heiminn þeirra og sjá fjölbreytileika hans. Heildstætt á litið þá er frístundageirinn á Árborg að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum/Erasmus+ til að efla starfið fyrir börn, ungmenni, starfsfólk og samfélagið í heild ásamt því að víkka sjóndeildarhring ungs fólks í samfélaginu. Með því að kynna sér öflugt starf í öðrum löndum eflum við starfsfólkið okkar og gefum því hugmyndir og eldmóð til að efla starfið heima fyrir. Með því að gefa ungmennum upplifanir, reynslu og aukna þekkingu á margvíslegri menningu eflum þau að þroska sjálfsmynd sína, styrkja sjálfstraust sitt og aukum víðsýni þeirra.