Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var ráðstefna fyrir ungt fólk á aldrinum 15 - 25 ára. Yfirskrift ráðstefnunnar var, að jörðu skaltu aftur verða sem vísaði til umhverfis- og loftlagsmála. Markmið ráðstefnunnar var að efla umhverfisvitund ungs fólks og skapa vettvang til þess að koma saman og ræða hvernig við sem einstaklingar getum lagt okkar að mörkum til þess að bæta umhverfið okkar og draga úr áhrifum loftlagsbreytinga. Gleði og þátttaka var einnig markmið ráðstefnunnar og að veita þátttakendum tækifæri til þess að kynnast nýju fólki og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif á sitt eigið líf og nær samfélag. Einnig var markmið viðburðarins að gefa þátttakendum tækifæri til þess að eiga samtal við þingmenn og ýmsa stjórnendur með óformlegum hætti um mál og málefni sem liggur þeim á hjarta.