Markmið Þjóðfundar ungs fólks um inngildingu, aðgengi og jafnrétti. er að valdefla ungt fólk til áhrifa, byggja brýr milli einstaklinga með fjölbreyttan bakgrunn og leita lausna við samfélagslegum hindrunum. Í ár var kastljósinu beint að inngildingu ungs fatlaðs fólks og fengu fundargestir að hlíða á fjölbreytt erindi um þær hindranir sem ungt fatlað fólk mætir í samfélaginu. Sextíu og sjö einstaklingar sóttu fundinn og tóku virkan þátt í starfinu þar sem þau deildu eigin reynslu og lærðu af reynslu annara ungmenna.