Back to search

Hinsegin Landsmót

2023-3-IS01-KA154-YOU-0001722202023Youth participation activitiesfinalized
Countries: IS · Grant: €27,772
Promoting LGBT+ equalityInclusion of marginalised young peoplePhysical and mental health, well-being

Objectives

Með því að halda Hinsegin Landsmótið vildum við skapa öruggan vettvang fyrir hinsegin ungmenni á Íslandi til að hittast, deila reynslu sinni og fá stuðning frá jafningjum sínum. Verkefnið hafði eftirfarandi markmið: Stuðningur og öryggi: Veita hinsegin ungmennum tækifæri til að hittast í öruggu umhverfi þar sem þau geta verið þau sjálf án hræðslu við fordóma eða áreitni. Menntun og fræðsla: Auka þekkingu ungmennanna á réttindum sínum og styrkja sjálfsmynd þeirra í gegnum fræðslur og vinnustofur. Lýðræðisleg þátttaka: Efla lýðræðislega þátttöku ungmennanna með því að leyfa þeim að taka virkan þátt í skipulagningu og framkvæmd viðburðarins. Einnig vildum gefa þeim tækifæri til að eiga samtal við ráðamenn og stefnumótendur. Valdefling og félagsleg tengsl: Styrkja sjálfstraust og samskiptahæfni þátttakenda með hópefli og fjölbreyttri dagskrá. Auka tengslanet þeirra og stuðla að aukinni þátttöku í félagsmiðstöðvastarfi þegar heim er komið. Samfélagsleg áhrif: Vekja athygli á málefnum hinsegin ungmenna og stuðla að jákvæðum breytingum á viðhorfum samfélagsins gagnvart þeim. Viðburðurinn miðaði að því að valdefla hinsegin ungmenni, auka vitund um þeirra stöðu og tryggja að þeirra raddir fái að heyrast!

Project partners (1)