Markmiðið var að skapa tækifæri fyrir bæði starfsfólk og ungmenni til að taka þátt í alþjóðlegum verkefnum, afla sér nýrrar þekkingar og reynslu og stuðla að auknu samstarfi á landsvísu. Í gegnum vettvangsferðir til Noregs, Póllands, Portúgals, Danmörku, Ungverjalands og Svíþjóðar fékk fjöldin allur af starfsfólki tækifæri til að læra um ólíka starfshætti, þróa eigin aðferðir, fá nýjar hugmyndir og byggja upp alþjóðlegt tengslanet. Ungmennaskipti til Osló veittu ungmennum einstakt tækifæri til að kynnast jafnöldrum frá öðrum löndum, efla samskipta- og félagsfærni sína og styrkja sjálfsmynd sína. Með þátttöku í Erasmus+ stefndi Samfés einnig að því að auka nýsköpun og miðlun góðra starfshátta innan félagsmiðstöðva- og ungmennahúsastarfs, dýpka samstarf við evrópsk ungmennasamtök og nýta til framþróunar ungmennastarfs á Íslandi. Verkefnið stuðlaði þannig að því að gera starfsumhverfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa fjölbreyttara og efla bæði starfsfólk og ungmenni. Síðast en alls ekki síst að styrkja tengslanet starfsfólks félagsmiðstöðva- og ungmennahúsa á landinu öllu og auka tengingu þeirra við Samfés sem landssamtök.