Back to search

Matur og menning #2

2024-1-IS01-KA152-YOU-0002419322024Mobility of young peoplefinalized
Countries: IS|IT · Grant: €74,023
Inclusion of marginalised young peoplePhysical and mental health, well-beingInternational relations and development cooperation

Objectives

Markmið verkefnisins var í grunninn að virkja unglinga sem þurftu á sérstakri styrkingu að halda t.d. vegna félagslegrar einangrunar, leiða, samskiptavanda eða vegna slakrar félagslegrar og/eða fjárhagsstöðu foreldra. Sérstök áhersla var lögð á sjálfsmynd, sjálfstraust og að öðlast trú á eigin getu með þátttöku í verkefninu. Auk þess að tilheyra hóp. Við náðum því fram með valdeflandi verkefnum í gegnum allt ferlið. Við byrjuðum á umsóknarferlinu þar sem við fórum í gegnum það allt í sameiningu, skipulag og almennt utanumhald, t.d. ferðatilhaganir og fjármál undir handleiðslu. Einnig var stór þáttur verkefnisins að þau verði hluti af hóp, eignist vini og séu félagslega virk í frítíma sínum. Þátttakendur íslenska hópsins voru valdir í hópinn í samráði við námsráðgjafa skólanna en öll eiga þeir sameiginlegt að glíma við félagslega einangrun, veikt bakland og að standa aðeins út fyrir hóp í sínu nærsamfélagi. Markmiðið með verkefninu var að búa til jarðveg þar sem þessir einstaklingar fá tækifæri til þess að tilheyra hóp, upplifa jákvæða virkni, kynnast öðrum nemendum utan síns skóla og vinna sameiginlega að verkefninu ungmennaskipti við annað land. Hópurinn hittist vikulega í hópefli, skemmtun og verkefnavinnu.

Project partners (2)