Back to search

Sjálfboðaliðar gera gæfumuninn!

2024-1-IS01-KA153-YOU-0002122072024Mobility of youth workersongoing
Countries: IS|DK · Grant: €26,925
Promotion of alternative forms of participationYouth employabilityNew learning and teaching methods and approaches

Objectives

Í öllum þeim fjölbreyttu störfum og viðburðum á vegum UMFÍ, þá hefur starf sjálfboðaliðans leikið þar lykilhlutverk. UMFÍ fékk samþykkta umsókn til að taka þátt í sjálfboðaliðaverkefnum European Solidarity Corps árið 2023 og í kjölfar þess var markmið þessa verkefnis að halda út í vettvangsheimsókn til vina okkar hjá ISCA (International Sport and Culture Association) í Danmörku. Heimsóknin gekk út á það að færðast um þeirra góða starf þegar kemur að móttöku sjálfboðaliða í fjölbreytt störf innan þeirra samtaka en þeir standa framarlega í slíku. Verkefnið, heimsóknin til ISCA, hafði það að markmiði að efla þekkingu og reynslu starfsfólks, stjórnarfólks og annarra þátttakenda UMFÍ þegar kemur að móttöku sjálfboðaliða í störf innan hreyfingarinnar. Okkur langaði með verkefninu að efla starfið okkar, með jákvæðum hætti, með því að heyra upplifun þeirra hjá ISCA á starfi með sjálfboðaliðum. Þá bæði að heyra af upplifun starfsmanna ISCA og frá sjálfboðaliðunum sjálfum. Ásamt því kæmi verkefnið til með að þétta hópinn hjá UMFÍ saman, þá starfsfólk skrifstofunnar í Reykjavík, starfsfólk skólabúða UMFÍ á Reykjum, stjórnarfólk og aðra sjálfboðaliða innan hreyfingarinnar. Við hjá UMFÍ sinnum mjög fjölbreyttu starfi. Meðal annars starfi sem felst í því að styðja við menntun og þroska ungmenna í skólabúðum okkar á Reykjum og erum við stöðugt að leita nýrra leiða til að mæta kröfum samfélagsins og skapa tækifæri fyrir alla ólíka hópa til þátttöku. Þar höfum við séð góð tækifæri til þess að taka á móti sjálfboðaliðum hvaðan af út heiminum í störf leiðbeinanda. Ásamt því höfum við áhuga á að fá sjálfboðaliða til starfa á skrifstofu okkar í Reykjavík. Því var ákveðið að allt starfsfólk UMFÍ væru mikilvægir þátttakendur í ferðina ásamt stjórnarfólki og viðeigandi sjálfboðaliðum innan hreyfingarinnar.

Project partners (2)