Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsu dagana 20. – 22. september á Reykjum í Hrútafirði. Viðfangsefni ráðstefnunnar var lýðheilsa, þ.e. félagsleg-, andleg- og líkamleg heilsa. Markmið viðburðarins var að gefa þátttakendum tækifæri til að auka félagslega hæfni sína og læra að vinna með gildi eins og samstöðu, lýðræði og vináttu. Valdefling fólst í þátttökunni. Þátttakendur hlutu einnig gott tækifæri til að mynda sér skoðanir og koma þeim á framfæri við jafningja og ráðafólk. Hlusta á ólíkar upplifanir og sjónarmið, brjóta ísinn í samskiptum við aðra og stækka þægindarammann. Þátttakendur voru ungt fólk á aldrinum 15 – 25 ára og komu þau af öllu landinu. Auk ungmenna tók starfsfólk ungmennaráða þátt og ýmsir þingmenn og íþróttafyrirmyndir. Metfjöldi sótti viðburðinn, eða tæplega hundrað þátttakendur. Dagskráin var með fjölbreyttu sniði. Boðið var upp á hópefli og samveru, áhugaverðan fróðleik og uppörvandi og hvetjandi vinnustofur. Að auki gafst þátttakendum tækifæri til að byggja upp tengslanet til framtíðar.