Megin markmið verkefnisins var að stuðla að jafnrétti með því að auka tækifæri barna og ungmenna með fatlanir til íþróttaiðkunar. Öll börn og ungmenni eiga að hafa jöfn tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi í sínu nær umhverfi af öryggi og virðingu. Nú hafa UMFÍ og ÍSÍ komið á fót svæðisstöðvum með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Svæðisstöðvarnar hafa með góðum árangri unnið að samræminu á íþróttastarfi milli landshluta, einmitt með áherslu á að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi, þá helst börnum með fötlun, börnum af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Verkefnið gekk út á að heimsækja Parasport DK sem eru landssamtök fatlaðra í Danmörku. Parasport DK er sérsamband undir danska Íþróttasambandinu (DIF). Parasport DK hefur mikla reynslu í að vinna með börnum og ungmennum með fötlun eða aðrar takmarkanir og fengum við meðmæli frá vinum okkar í Íþróttasambandi fatlaðra (ÍF) þegar við ákváðum að heimsækja þau. Í grófum dráttum gekk verkefnið út á það að efla alla sem koma að starfi svæðisstöðva UMFÍ og ÍSÍ til aukins skilning á íþróttastarfi fatlaðra og inngildingu. Þátttakendur verkefnisins höfðu allir gott af því að fræðast um starfið hjá Parasport DK, læra og spegla þeirra starf yfir á okkar góða starf í íþróttahreyfingunni hér á Íslandi.