Verkefnið var unnið í samstarfi Headspace-samtaka á Íslandi, í Danmörku og Noregi. Markmiðið var að efla tengsl og samvinnu milli starfsfólks í þessum þremur löndum, miðla þekkingu og reynslu, og þróa faglega hæfni til að bæta þjónustu við ungt fólk. Lögð var áhersla á að styrkja lágþröskuldaþjónustu Headspace-líkansins og auka skilning á ólíkum nálgunum innan þess, meðal annars með því að bera saman áherslur milli landa og læra af mismunandi starfsháttum. Verkefnið hafði einnig það markmið að byggja upp sjálfbært tengslanet til áframhaldandi samstarfs og þróunar á Norðurlöndum.