Back to search

We - Við - Meie

2025-1-IS01-KA152-YOU-0003013112025Mobility of young peoplefinalized
Countries: IS|EE · Grant: €30,173
Environment and climate changeCreativity, arts and cultureCultural heritage

Objectives

Markmið verkefnisins var að styrkja ungmenni úr dreifbýli og jaðarsettum samfélögum á Íslandi og í Eistlandi með því að skapa tækifæri til óformlegs náms. Með verkefninu vildum við rjúfa hindranir sem þessi ungmenni standa oft frammi fyrir, til dæmis skert aðgengi að tómstundum, félagslegri þátttöku og alþjóðlegum tækifærum. Verkefnið lagði sérstaka áherslu á að efla leiðtogahæfni, félagsfærni og sjálfstraust þátttakenda, þar sem þessi hæfni er mikilvæg fyrir þau og getur gefið margfalt af sér til samfélagsins aftur. Ungmennin fengu tækifæri til að taka virkan þátt í skipulagi verkefnisins, taka ábyrgð í verkefnavinnu og þróa samskipta- og samstarfshæfni sína. Frá sjónarhóli ungmenna- og félagsstarfs fólst markmiðið í að skapa öruggt og uppbyggilegt umhverfi þar sem þátttakendur læra með því að gera, fá að tjá sig, taka þátt í ákvörðunum og kynnast nýjum sjónarhornum. Með því að vinna saman þvert á þjóðerni og menningarmun öðluðust þau betri færni í samskiptum, teymisvinnu og lausnaleit. Verkefnið hafði einnig skýr markmið tengd sjálfbærni og umhverfisvernd. Þátttakendur fengu að fræðast um mikilvægi náttúruauðlinda, sérstaklega ferskvatns, og öðluðust skilning á því hvernig daglegar venjur og val hafa áhrif á umhverfið. Við vildum efla með þeim ábyrgð og meðvitund sem nýtist hinum staðbundnu samfélögum þeirra til framtíðar. Í heildina stefndi verkefnið að því að styðja við uppbyggingu sjálfsöruggra og virkra ungra einstaklinga sem verða framtíðar leiðtogar í sínum nærumhverfum og verði betur í stakk búin að taka þátt í samfélaginu, bæði á staðbundnum og evrópskum vettvangi.

Project partners (2)