Back to search

Ungt fólk og lýðheilsa : Félagslegir töfrar

2025-1-IS01-KA154-YOU-0002985082025Youth participation activitiesfinalized
Countries: IS · Grant: €48,665
Democracy and inclusive democratic participationReaching the policy level/dialogue with decision makersPhysical and mental health, well-being

Objectives

Ungmennaráð UMFÍ stóð fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa - Félagslegir töfrar í september 2025. Ráðstefnan var fyrir ungt fólk á aldrinum 15–30 ára og var opin öllum, óháð því hvort viðkomandi sat í ungmennaráði eða starfaði innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar. Viðfangsefni ráðstefnunnar voru Félagslegir töfrar, þar sem sjónum var beint að mikilvægi jákvæðra tengsla, samvinnu, inngildingar og þeirra félagslegu þátta sem hafa áhrif á vellíðan og lýðheilsu. Markmið viðburðarins var að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks og skapa vettvang þar sem þátttakendur gátu eflt sjálfsmynd sína, aukið sjálfstraust og styrkst í að taka upplýstar ákvarðanir um eigið líf og lífsstíl. Jafnframt var lögð áhersla á að veita þátttakendum verkfæri og þjálfun til að hafa aukin áhrif á eigið líf sem og sitt nærsamfélag. Þátttakendur fengu tækifæri til að mynda sér skoðanir og koma þeim á framfæri, hlusta á ólík sjónarmið, efla samskiptafærni og byggja upp tengslanet til framtíðar. Með þátttöku sinni styrktust þau í að taka virkan þátt í samfélaginu og láta rödd sína heyrast. Dagskráin var fjölbreytt og byggði á fræðslu, umræðum, vinnustofum og hópefli þar sem áhersla var lögð á jákvæða upplifun, samveru og valdeflingu ungs fólks.

Project partners (1)