Með verkefninu vildum við bæði læra af starfsemi Ítalanna og starfa með sambærilega nálgun á fræðslu á jafningjagrundvelli, ásamt því að deila okkar reynslu af aðferðafræði jafningjafræðslu Hins Hússins. Við viljum læra af ítölsku ungmennunum og fræðast um hvernig þeirra ungmenna starfi er háttað og hvaða tækifæri eru til staðar fyrir ungt fólk þar. Markmið okkar var einnig að öðlast innblástur til að þróa hugmyndafræði Jafningjafræðslunnar með því að læra um ungmennastarfsemi annars lands. Við vildum vera dugleg að deila ferðinni á samfélagsmiðlum og kynna þannig uppgötvanir okkar og tækifærin sem gefast í þessari Erasmus ferð. Við vildum líka kynna ferðina fyrir öðrum sem gætu haft áhuga á að sækja sjálf um ferð með Erasmus.